Mynd dagsins: „Ég dýrka þegar Airbnb gestirnir mínir skilja eftir litlar gjafir“

Það getur verið hálfgert happdrætti að leigja íbúðna sína út á Airbnb eins og eflaust margir Íslendingar þekkja.

Heiður Anna Helgadóttir, þjónustustjóri Stúdentagarða hjá Félagsstofnun stúdenta, birti ansi áhugaverða færslu á Twitter-síðu sinni í vikunni og sagði: „Ég dýrka þegar airbnb gestirnir mínir skilja eftir litlar gjafir.“

Með færslunni eru svo tvær myndir og verður ekki betur séð en að um sé að ræða myndir af þvagi í flösku. Færslan vakti mikla athygli og virðist Heiður ekki vera sú eina sem hefur lent í lélegum Airbnb-leigjendum.

„Samt fallegt af þeim að skilja hana eftir í flösku, mínir síðustu skildu gjöfina eftir í stórum polli inni á baðherbergi,“ segir í einni athugasemd og í annarri segir:

„Næs! Ég fékk bara einu sinni klósettburstann blautan á baðherbergisgólfinu, notaðar túrvörur útum allt og lélegt review frá sömu konunni. Hún var ósátt við ástandið á húðuninni á baðkarinu.“