Mynd dagsins: „Ef þú hefur ein­hvern tímann velt fyrir þér hversu mikið pláss er á toppi Hraun­dranga þá er hér komið svar“

Hraun­drangi er 1075 metra hár fjalls­tindur á Dranga­fjalli í Öxna­dal. Hann var lengi talinn ó­kleifur, en 5. ágúst 1956 var hann klifinn af tveimur Ís­lendingum og einum Banda­ríkja­manni, sem voru Sigurður Wa­age, Finnur Eyjólfs­son og Nicholas Clinch.

Sagnir höfðu verið um að kista full af gulli væri geymdu upp á tindinum, en sú saga reyndist ekki á rökum reist að sögn klifur­mannanna.

Hraun­drangi er ekki síst þekktur vegna ljóðs Jónasar Hall­gríms­sonar, Ferða­lok, sem hefst á línunum „Ástar­stjörnu / yfir Hraun­dranga / skýla nætur­ský.“

Gunnar nokkur kleif nú ný­verið tindinn ný­verið og tók þar mynd af sér og fé­lögum sínum á toppi Hraun­dranga. Það er ljóst að þar er svo sannar­lega ekki mikið pláss eins og sjá má.