Mynd dagsins: Ef þú blandar saman Bjarna Ben og Sig­mundi Davíð færðu þjóð­þekktan Ís­lending

Mynd dagsins að þessu sinni er býsna skemmti­leg og birtist hún í Face­book-hópnum Al­gjör­lega ó­áhugaverðar stjórn­mála­upp­lýsingar í dag.

Það var Sigur­björg Erla Egils­dóttir, bæjar­full­trúi Pírata í Kópavogi, sem birti myndina sem er eins­konar sam­bland af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra og Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokksins.

„Ef maður faceswappar and­litið af Sig­mundi Davíð á höfuðið á Bjarna Ben þá er út­koman Ás­geir Kol­beins,“ segir Sigur­björg Erla en myndina má sjá hér að neðan.

Ás­geir Kol­beins er þekktur sjón­varps- og út­varps­maður en hann hefur auk þess verið fyrir­ferða­mikill í skemmtana­lífinu og veitingahúsa­bransanum á undan­förnum árum svo eitt­hvað sé nefnt.

Myndina má sjá hér að neðan: