Íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir hefur vakið mikla athygli fyrir stórfenglegar, eða í raun stórmerkilegar, veitingar í barnaafmælum. Í stað þess að vera með skúffuköku og óhollustu er hún með fígúru úr grænmeti, brauði og poppkorni. Hún segir þetta afgerandi stefnubreytingu:
„Við höfum ekki tekið jafn afgerandi stefnubreytingu í neinum málaflokki og veitingum í barnaafmælum,“ segir hún á Twitter og deilir mynd af kræsingunum.
Við höfum ekki tekið jafn afgerandi stefnubreytingu í neinum málaflokki og veitingum í barnaafmælum. pic.twitter.com/rKh66qFlAr
— Edda Sif Pálsdóttir (@EddaSifPalsd) March 9, 2022
Innleggið hefur vakið mikla athygli, Stefán Hagalín hjá Landspítala er ekki sannfærður að þetta nái almennri hylli:
„Haugur af foreldrum ennþá að eitra reglulega fyrir börnunum sínum með sykri,“ segir hann.
Þá hafa augu fólks beinst að fígúrunni sem sumir segja vera martraðavaldandi.
Ég alla mánudagsmorgna pic.twitter.com/W8OPON4cuU
— Þórunn Jakobs 🇵🇸🇺🇦 (@torunnjakobs) March 9, 2022