Margir stærstu fjölmiðlar heims, þá sérstaklega í gulu pressunni, hafa undanfarið fjallað um gamla íslenska ljósmynd sem þykir óvenjuleg fyrir óvenjulegar sakir.
Einhverjir telja að á myndinni sjáist tímaflakkari. Á horni Bankastrætis, Lækjargötu, og Austurstrætis sést maður sem virðist vera að tala í farsímann. Myndin er tekin árið 1943, lögnu fyrir uppgötvun hans.
Fjölmiðlar á borð við New York Post, The Sun og The Mirror fjalla um málið.
Nánar var fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.
Hvað heldur þú að sé á myndinni?