Mynd dagsins: Dagur hitti finnska sendiherrann og birti mynd af sér í saunu

Það er fátt þægilegra en að skella sér í saunu, spurðu bara hvaða Finna sem er. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er ekki undanskilinn en hann tók í dag við viðurkenningu fyrir bestu saununa fyrir hönd Breiðholtslaugar frá finnska sendiherranum:

„Gufubaðið í Breiðholtslaug var valið það besta - af engum öðrum öðrum en finnska sendiherranum. Virkilega gaman að veita viðurkenningunni viðtöku, prófa að vera hýddur með birki-knippi og spjalla við fastagestina og aðra sundlaugagesti,“ segir Dagur á Facebook og birtir af því tilefni af sér mynd í saunu.

Hann spyr svo:

„Breiðhyltingar eru harðir á því að þar sé besta sundlaugin og margir taka sjálfsagt undir það. Hvað segið þið? Hver er besta laugin?“