Ólafur Örn Ólafsson, einn eigenda Vínstúkunnar Tíu sopar, er þreyttur á því að miðbær Reykjavíkur sé talaður niður. Mikið hefur verið rætt um göngugötur í miðbænum sem sumir telja að fæli fólk frá, Ólafur telur hins vegar að það sé frekar neikvæð umræða og segir að bærinn hafi aldrei verið líflegri.
Til að svara þeim sem hafa birt myndir á samfélagsmiðlum af tómum göngugötum birti hann mynd á Twitter af tómum „göngugötum“ í Kringlunni og segir:
Hrikalegt að sjá ástandið í göngugötu Kringlunnar allt tómt og samt er fullt af bílastæðum fyrir utan ! @Dagurb búinn að eyðileggja Kringluna! pic.twitter.com/laXGuQk6SY
— Ólafur Örn Ólafsson (@olafurorn) June 24, 2020
Tekur hann svo fram að hann hafi ekkert á móti Kringlunni eða bílum. Notar hann sinn bíl töluvert. „Ég er einungis að sýn fram á að það er hægt að láta allt líta út allskonar ef maður vill. Það er fólk sem sætir lagi á Laugaveginum og tekur svona myndir og póstar á FB,“ segir Ólafur.
Teitur nokkur segir að Ólafur sjái ekki hið augljósa: „Það vantar bílastæði FYRIR FRAMAN búðirnar í Kringlunni. Þess vegna er allt tómt þarna inni.“
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir sjálfsagt að biðjast afsökunar :
Sjálfsagt að biðjast afsökunar á þessu. Lítið verið rætt um að keyrt verði eftir þessum göngugötum. Verslunarfólk bendir á rannsóknir um að göngugötur auki verslun. Hef kannað. Það er rétt. Göngugötur í Kringlunni eru komnar til að vera. https://t.co/V7aAe9pEab
— [email protected] (@Dagurb) June 24, 2020