Mynd dagsins: Dag­björt minnist þegar Gor­bat­sjov veifaði tveggja ára stúlku á Ís­landi– „Þessi stúlka var ég“

Dag­björt Hákonar­dóttir, lögfræðingur Reykjavíkurborgar og vara­þing­maður Sam­fylkingarinnar, minnist Mik­haí­l Gor­bat­sjov fyrrum aðal­ritara kommún­ista­flokksins í Sovét­ríkjunum í dag.

Gor­bat­sjov lést í gær 91 árs að aldri en hann mætti hingað til lands í nóvember 1986 er hann kom til fundar við Ronald Reagan for­seta Banda­ríkjanna. Fundurinn vakti gríðar­­­lega at­hygli hér á landi sem og í heiminum öllum enda markaði hann tíma­­­mót í tor­veldum sam­­­skiptum Banda­­­ríkjanna og Sovét­­­ríkjanna. Á­huga­­­samir Ís­­­lendingar tóku virkan þátt í öllu því um­­­stangi sem fundinum fylgdi og segja má að gripið hafi um sig eins konar leið­­­toga­fundar-æði hér á landi.

Meðal þeirra var tveggja ára Dag­björt sem veifaði Gor­bat­sjov og veifaði hann henni til­baka.

„Nóvember 1986. Gor­bachev gerði sér far um að veifa tveggja ára barni í dökk­blárri Harrodskápu með hatt í stíl fyrir utan Höfða. Þessi stúlka var ég,“ skrifar Dag­björt.