„Burt með þessa bíla. Þetta eru ekki stæði. Eyðileggja alveg stemninguna. Þurfum skýrari borgarhönnunarstefnu!“
Þetta segir Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, á Twitter-síðu sinni. Líf virðist hafa skellt sér í göngutúr um hafnarsvæðið í miðborg Reykjavíkur um helgina og á vegi hennar urðu þessir bílar sem sjást á mynd hennar hér að neðan.
Líf er mikil talskona þess að stunda bíllausan lífsstíl en hún hyggst halda áfram baráttu sinni í borgarmálunum á næsta kjörtímabili. Hefur hún boðið sig fram í oddvitasæti flokksins fyrir kosningarnar í vor.
Líf viðurkennir í athugasemd við færsluna að bílar séu svo sem ágætir til ýmislegs. „Það er samt bara alltof mikið af þeim og þeir taka alltof mikið pláss, alls staðar.“
Einn bendir á að enginn kvöldvakt virðist vera hjá Bílastæðasjóði. Því svarar Líf svona:
„Nei. Væri ráð. Fjölga vörðum, stækka gjaldsvæðið og lengja tímann.“
Einn hvetur Líf þó til að anda rólega.
„Hvað ertu að meina Líf, þarna sést ekki einn einasti maður, engin hjól og augljóslega enginn fyrir neinum. Þarna er nægt pláss og óþarfi að agnúast útí bíla og akandi umferð. Anda inn .....“
Burt með þessa bíla. Þetta eru ekki stæði. Eyðileggja alveg stemninguna. Þurfum skýrari borgarhönnunarstefnu! 😫 pic.twitter.com/4yGmONo3g3
— Líf Magneudóttir (@lifmagn) January 29, 2022