Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, virtist allt annað en sátt með skilti Viðars Guðjohnsen, athafnamanns, sem stendur fyrir utan hús hans í Mörkinni. Í Facebook færslu birtir Sólveig mynd af sér þar sem hún sést gefa skiltinu puttann.
Skiltið sem um ræðir er frægt fyrir skilaboðin um að lesa Morgunblaðið, styðja Donald Trump, hafna Evrópusambandinu og Schengen-samstarfinu, og hefur staðið þar í nokkur ár.
Sjá einnig: Skemmdir unnar á skilti Viðars Guðjohnsen: „Ég er ekkert spældur“
Líkt og Hringbraut greindi frá á dögunum voru skemmdarverk unnin á skiltinu í síðustu viku en Viðar var ekki lengi að gera við það.
„Ég kalla skiltið reiðimælinn, alltaf þegar einhver hávær umræða er um eitthvað eins og ESB eða Trump þá koma einhverjir og skemma það,“ sagði Viðar um málið.