Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur í gegnum tíðina safnað húðflúrum til að skreyta líkama sinn með og í gærkvöldi frumsýndi hann tvö ný húðflúr á Twitter-síðu sinni.
Í færslu sinni sagði Bubbi að hann hafi verið að bæta við flúri eftir dætur sínar, vinstra megin má sjá skemmtilega og hárprúða fígúrú sem minnir um margt á Óla prik en hægra megin má sjá gítar.
Í mars síðastliðnum var greint frá því að Bubbi hefði látið flúra sína eigin lagatexta á sig. Þá var greint frá því árið 2019 að hann hefði látið flúra nöfn barnanna sinna sex á bakið á sér.
Ég hef verið að bæta blek flúri eftir dætur mínar þessi var að koma bætti líka við gítar pic.twitter.com/sriwot2MvL
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) August 11, 2021