Mynd dagsins: Brunaði yfir á rauðu og löggan gerði ekkert

Matthías Ásgeirsson, fyrrverandi formaður Vantrúar og einn af stofnendum félagsins, birti áhugaverða mynd á Twitter-síðu sinni í gær.

Á myndinni, sem tekin er á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjarbakka má sjá þegar bifreið er ekið gegn rauðu ljósi. Hægra megin við bílinn sést í lögreglubíl en svo virðist vera sem lögregla hafi ekki séð umferðarlagabrotið ef marka má færslu Ásgeirs.

„Svipmynd úr umferðinni rétt fyrir hádegi. Lögreglan hægra megin sá ekkert athugavert þó bæði væri of hratt ekið og yfir á rauðu. Hef keyrt dálítið síðustu 36 tíma og það verður að segjast eins og er, umferðin er "klikkuð",“ segir Ásgeir.