Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur og einn af okkur bestu textasmiðum, kom auga á nokkuð skemmtilegt í fjörugum umræðum á Twitter í gær.
Umræðurnar snerust um fjölda áfengisverslana í Reykjavík og setti maður að nafni Sverrir inn kort sem sýndi hversu margir íbúar Reykjavíkur, vestan Elliðaárósa, væru utan göngufjarlægðar frá næstu Vínbúð.
Gróft á litið eru um 30.000 íbúar Reykjavíkur vestan Elliðaárósa utan göngufjarlægðar við Vínbúð. Á þessu svæði búa um 70.000 (Miðað við 1km radíus, ca 15 mín labb aðra leið, sem er langt fyrir göngufjarlægð. Ekki er tekið tillit til aðstæðna gangandi að þessum stöðum.) pic.twitter.com/FBWkocMtEZ
— Sverrir (@sverrirbo) March 18, 2021
Athugasemd Braga Valdimars snerist ekki að neinu leyti um Vínbúðir eða göngufjarlægðir í Reykjavík heldur kom hann auga á nokkuð skemmtilegt á umræddu korti:
„Það langáhugaverðasta við þetta kort er samt að Skerjafjörður er eins og gaur að róta í ruslafötu,“ sagði Bragi og birti þessa mynd hér:
Fleiri notendur komu auga á fígúrur sem lesa má úr umhverfinu. Til dæmis þessi hér sem lítur út eins og ísbjörn:
Þú hefur þá aldrei séð rúdólf ísbjarnarson? pic.twitter.com/fkOJL8jkFg
— KonniWaage (@konninn) March 18, 2021