Mynd dagsins: Boltastrákur á Laugardalsvelli 2015 – Fyrsti landsleikurinn á morgun?

Mynd dagsins að þessu sinni er af Andra Fannari Baldurssyni, landsliðsmanni í knattspyrnu, og landsliðsfyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni.

Umrædd mynd var tekin á landsleik Íslands og Kasakstan í september 2015, en í umræddum leik tryggði íslenska landsliðið sér sæti á EM í Frakklandi – mót sem átti eftir að verða býsna eftirminnilegt fyrir okkur Íslendinga. Andri Fannar var boltastrákur á leiknum en óhætt er að segja að síðan þá hafi mikið vatn runnið til sjávar, að minnsta kosti hjá Andra Fannari.

Andri leikur með Bologna á Ítalíu í einni sterkust deild heims. Hann fékk nokkur tækifæri með liðinu eftir áramót og það er nokkuð ljóst að framtíð Andra Fannars er björt. Andri er í landsliðshópi Íslands fyrir leikinn gegn Belgíu á morgun og gæti hans fyrsti landsleikur komið gegn þjóðinni sem er í efsta sæti á styrkleikalista FIFA.

Myndin birtist á Facebook-síðu umboðsskrifstofunnar Stellar Nordic. Við myndina stendur:

„Hérna þurrkar fyrirliði Íslands, Aron Einar Gunnarsson boltann hjá Andra Fannari. Þarna dreymdi hann um að spila fyrir íslenska landsliðið og það gæti gerst á morgun. Aldrei hætta að trúa og dreyma.“

Andri Fannar Baldursson (2002) var boltastrákur þegar KSÍ - Knattspyrnusamband Íslands spilaði gegn Kasakstan og tryggði...

Posted by Stellar Nordic on Mánudagur, 7. september 2020