Mynd dagsins er af ástsælasta fréttamanni landsins, Boga Ágústssyni. Myndin var tekin af Boga þar sem hann starfaði sem háseti á Dettifossi sumarið 1976.
„Þetta var sumarvinnan í menntaskóla og háskóla. Hálfu ári eftir að þessi mynd var tekin var ég kominn á þann vinnustað þar sem ég er enn,“ skrifar Bogi við myndina. Hún birtist inni á Facebook hópnum Gamlar ljósmyndir í dag.
Hvert einasta mannsbarn þekkir til Boga, sem starfað hefur á RÚV í 44 ár og fært landsmönnum kvöldfréttirnar. Myndin þannig hlotið gríðarlega mikil viðbrögð en 1300 manns bregðast við færslunni inni á Facebook hópnum og hátt í sextíu manns leggja orð í belg við hana.