Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, hefur vakið athygli fyrir beittar og góðar spurningar á upplýsingafundum almannavarna í kórónuveirufaraldrinum. Eins og komið hefur fram er Björn Ingi með bók í vinnslu um faraldurinn og bíða margir spenntir eftir því að sjá útkomuna.
Björn Ingi birti skemmtilega mynd af sér á Facebook í morgun, en á henni má sjá hann skarta býsna flottri andlitsgrímu til að verjast COVID-19. Gríman er svört en það er einna helst áletrunum á henni sem vekur athygli: Björn Ingi heiti ég frá Viljanum. Við færsluna skrifar hann einfaldlega: „Búmm“
Þeir sem fylgst hafa með upplýsingafundunum hafa eflaust heyrt þessi orð frá Birni Inga, en hann hefur, þótt ótrúlegt megi virðast, setið nærri jafn marga fundi og þríeykið góða.
Búmm.
Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Miðvikudagur, 26. ágúst 2020