Blaðamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson er kominn heim frá Úkraínu heill á húfi samkvæmt Instagram reikningi hans.
Björn Ingi fór til Úkraínu til að flytja fréttir af stríðinu en Rússar réðust inn í landið.
Hann birti mynd af sér í Krakow í Póllandi á heimleið fyrir þrettán klukkutímum síðan en var síðan mættur í Ísaksskóla að hlusta á skólakórinn syngja með börnum sínum. Þá birti hann einnig mynd af sér með börnum sínum.
„Dásamleg jarðtenging,“ skrifar Björn við myndbandið af börnunum að syngja í Ísaksskóla en heldur betur rólegri þar en á stríðsvæðinu. Hann birti síðan mynd af sér með sólgleraugu hér á Íslandi og spurði fylgjendur sína hvort það væri komið vor.