Mynd dagsins: Björgunar­skipið Sjöfn sendir frá sér skondna jóla­kveðju

Á­höfnin á björgunar­skipinu Sjöfn, sem er á vegum Slysa­varna­fé­lagsins Lands­bjargar, var greini­lega í jóla­skapi í dag þegar haldið var út á sjó.

Björgunar­skipið hafði sam­band við stjórn­stöð Land­helgis­gæslunnar síð­degis í dag og bað um ferill skipsins yrði skoðaður.

Þegar varð­stjórarnir litu á skjáinn blasti við þeim þetta fal­lega jóla­tré sem má sjá hér að neðan.