Það mál sem hefur verið hvað mest í umræðunni síðustu daga eru erjur LXS-skvísanna við pisltahöfundinn Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur, sem gagnrýndi raunveruleikaþátt hópsins í útvarpsþættinum Lestinni á RÚV.
Salvör minntist í gríni á tengdaföður LXS-meðlimsins Sunnevu Einarsdóttur, en það er enginn annar en fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson.
SJÁ EINNIG: Gagnrýni Salvarar á LXS vekur hörð viðbrögð
Líkt og flestir vefmiðlar landsins hafa gert skrifaði Mbl.is frétt um málið, og í kjölfarið var fréttinni deilt á Facebook-síðu miðilsins.
Í fréttinni var talað um Bjarna sem „fullorðinn mann“, en í deilingartextanum á Facebook mátti finna óborganlega villu. Þar var talað um Bjarna sem „fullkominn mann“.
Einhver hefur þó breytt færslunni, og nú stendur „fullorðinn maður“, en þegar breytingarsaga færslunnar er skoðuð sjást upprunalegu skilaboðin.
Það var lögfræðingurinn Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann sem benti á þetta á Twitter í gær, en hún skrifaði: „Það fer ekkert á milli mála að Bjarni Ben er hinn fullkomni maður í augum blaðamanna mbl.“
Það fer ekkert á milli mála að Bjarni Ben er hinn fullkomni maður í augum blaðamanna mbl pic.twitter.com/hSwV5ix7aQ
— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) September 6, 2022