Steinar Steinarsson, flugstjóri hjá Icelandair, flaug sitt síðasta áætlunarflug fyrir flugfélagið á 40 ára starfsferli. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, var með í för og nældi sér í eina mynd með Steinari enda mikil tímamót.
„Ég var í góðum höndum á leið í vinnuferð til Oslóar á dögunum. Við stýrið var flugstjórinn Steinar Steinarsson, í sínu síðasta áætlunarflugi á 40 ára ferli. Það var skemmtilegt að líta fram í, sjá útsýnið af skrifstofunni og heyra sögur af löngum og glæsilegum ferli.
Takk fyrir farið Steinar og til hamingju með starfslokin!“ skrifar Bjarni á Facebook en mynd af þeim félögum má sjá hér að neðan.