Mynd dagsins: Bílastæðin voru tekin og þetta kom í staðinn

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, birti skemmtilega mynd á Twitter-síðu sinni í gær. Líf hefur verið áberandi að undanförnu í baráttunni fyrir vistvænni umferð, fleiri hjólreiðastígum og minna vægi einkabílsins.

Í færslu sinni segir Líf og birtir svo mynd: „Betri nýting á sumum bílastæðum. Dæmi:“

Hún birtir svo aðra mynd við Pétursbúð á Ránargötu þar sem búið er að smíða huggulegan skjólvegg í stað bílastæða sem voru þar áður. Hún segir að tækifærin séu fleiri og nefnir til dæmis svæðið fyrir framan Melabúðina á Hagamel.