Mynd dagsins að þessu sinni birti Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, á Twitter-síðu sinni í gær. Sigríður fór mikinn í umræðunni þegar Covid-faraldurinn stóð sem hæst og gagnrýndi harðar aðgerðir yfirvalda, til dæmis samkomutakmarkanir sem stóðu lengi yfir.
Myndin sem Sigríður birti er skjáskot úr Kastljósi RÚV í gærkvöldi þar sem rætt var við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðsstjóra hjá landlækni og doktor í sálfræði, sem hefur sérhæft sig í hamingjurannsóknum.
Færsla Sigríðar er svohljóðandi en myndina má sjá neðst:
„Landlæknisembættið, þetta sama og bannaði fólki að hittast í næstum tvö ár, er mætt aftur og nú með nýtt prógram (beint frá UK): Leiðin að hamingjunni - mikilvægast af öllu í heiminum er myndun tengsla með samveru. Jæja, batnandi fólki er svo sem…“
Landlæknisembættið, þetta sama og bannaði fólki að hittast í næstum tvö ár, er mætt aftur og nú með nýtt prógram (beint frá UK):
— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) January 3, 2023
Leiðin að hamingjunni - mikilvægast af öllu í heiminum er myndun tengsla með samveru.
🤦♀️
Jæja, batnandi fólki er svo sem… pic.twitter.com/Z1zI8sxFf4