Mynd dagsins: Barnungur Halldór Benjamín sagðist ætla að verða þetta þegar hann yrði stór

Árið 1995 var ungur Halldór Benjamín Þorbergsson, nú framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, spurður í DV hvað hann ætlaði að verða þegar hann yrði stór.

Halldór svaraði: „Ég ætla að vera milljónamæringur þegar ég verð stór.“

Einhverjir hafa bent á þessi ummæli í dag í ljósi viðtals við Halldór sem tekið var við hann í Íslandi í dag. Þar fullyrti hann að stefnan hefði verið að fara í listaháskóla, hann hefði meira að segja komist í einn slíkan.

„Þessi sem ætlaði að verða listamaður.“ skrifar einn Twitter-verji og birtir skjáskot úr DV árið 1995.