Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, segist vera farinn að velta fyrir sér að kaupa sér fasteign á Tenerife, húsi sem fólk sem lifir af lífeyrissparnaði ræður við.
Anna heldur fylgjendum sínum á Facebook upplýstum reglulega um lífið í Paradís, eins og hún kallar eyjuna fögru, og skrifar pistla þar sem hún slær jafnan á létta strengi. Hún birti pistil í morgun sem hefur fengið marga til að brosa.
„Ég hefi séð nokkur áhugaverð einbýlishús undanfarna daga hér í Los Cristianos sem uppfylla þessi skilyrði mín. Önnur fasteignin er nýleg og á einni hæð, stendur fjarri öðrum húsum og skarkala bæjarins, en þó austast við eina helstu umferðargötu bæjarins en mjög nærri skemmtilegri baðströnd. Einungis einn eigandi hefur verið að húsinu og sem hann byggði sjálfur af mikilli elju og framsýni. Góð loftkæling er í húsinu. Engar kvaðir eru gegn því að byggja bílskúr á lóðinni eða stækka húsið og fjölga herbergjum. Sömuleiðis býður fasteignin upp á mikla möguleika á frekari framkvæmdum fyrir handlaginn eiganda.“
Anna segir að hin fasteignin sé nærri El Camison og sömuleiðis mjög nýleg, á einni hæð og nánast beint á móti verslunarmiðstöðinni í Parque Santiago 6, Mercadona og HM og því auðvelt um alla aðdrætti.
„Þrátt fyrir nálægðina er það á mjög kyrrlátum og einstaklega skjólsælum stað. Íbúðarhúsið er með mjög góðri loftræstingu en auk þess er sérstakt gestahús og því nóg pláss þegar gesti ber að garði. Geysilega góð líkamsræktaraðstaða fylgir fasteigninni. Frá útsýnispalli við íbúðarhúsið er mjög gott útsýni til strandlengjunnar og nálægra hverfa eins og Los Cristianos og Amerísku strandarinnar Bæði þessar fasteignir eru vel viðráðanlegar í verði fyrir eftirlaunafólk. Sjálf á ég erfitt með að gera upp á milli þessara tveggja fasteigna og spyr ykkur því hvora þið mynduð velja í mínum sporum?
Myndirnar sem Anna birti má sjá hér að neðan:
Dagur 2.151 - Fasteignakaup? Ég hefi verið að velta fyrir mér húsakaupum hér í Paradís og þá einhverju húsi sem fólk...
Posted by Anna Kristjánsdóttir on Mánudagur, 11. janúar 2021