Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, er í sjöunda himni þessa dagana eftir að hún gerði býsna góð kaup á bifreið á eyjunni fögru. Anna heldur fylgjendum sínum á Facebook reglulega upplýstum með skemmtilegum pistlum og í morgun birti hún býsna skemmtilega mynd af sér á nýja bílnum.
„Það var einu sinni Þjóðverji sem átti tvö heimili. Tíu mánuði ársins bjó hann í Þýskalandi og stundaði sín viðskipti. Suður í Paradís átti hann annað heimili og bjó þar tvo mánuði á ári, átti hús á báðum stöðum og naut lífsins. Þegar kom að sumarleyfinu settist hann upp í sportbílinn sinn og ók suður til Spánar, þar um borð í ferju og áfram til Tenerife,“ segir Anna í færslunni en þessi ágæti Þjóðverji var sum sé eigandi bílsins.
„Svo fór Þjóðverjinn á eftirlaun. Maður á eftirlaunum þarf ekki að eiga tvö hús og sportbíl svo hann seldi húsið sitt í Þýskalandi og flutti til Tenerife þar sem hann ákvað að losa sig við blæjubílinn frá Mercedes og fá sér jeppling eins og aðrir eftirlaunamenn enda maðurinn gamall og stirður og erfitt að fara inn í bílinn. Maðurinn örugglega kominn yfir sextugt og stoðkerfisvandamálin farin að segja til sín. Vandamálið var bara að bíllinn sem var einungis keyrður 100 þúsund kílómetra þótt hann væri 17 ára gamall var að verða verðlaus sökum aldurs.“
Til að gera langa sögu stutta er gamli maðurinn kominn á nýjan bíl og búinn að selja Önnu sportbílinn.
„Gömul kona í Los Cristianos, kona sem einnig er komin á eftirlaun, vildi eignast bíl. Í dag má sjá gömlu konuna sem komin er nálægt sjötugu á gömlum Mercedes sportbíl án topplúgu en með blæju akandi um allt eins og ungpía og ef hlustað er vandlega á hljóðin úr bílnum þegar seventís eða eitís tónlistin þagnar, má heyra gömlu konuna raula fyrir munni sér á íslensku:
Ég fer í ljós þrisvar í viku
og mæti reglulega í líkamsrækt
ég fer í Hollywood um helgar
með mynd af bílnum í vasanum.
P.s. Það á eftir að þrífa Calimarykið frá Sahara af bílnum og bóna hann.
Dagur 2.7. - Þjóðverjinn. Það var einu sinni Þjóðverji sem átti tvö heimili. Tíu mánuði ársins bjó hann í Þýskalandi og...
Posted by Anna Kristjánsdóttir on Föstudagur, 21. ágúst 2020