Mynd dagsins: Allt möl­brotið á Grinda­víkur­velli eftir skjálftana

Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Ungmennafélags Grindavíkur, deilir á Twitter mynd af afar óheppilegu atviki.

Svo virðist vera að skápar hafi opnast og bollar hrunið úr þeim við jarðskjálftana á Reykjanesinu.

Ekkert lát virðist vera á jarðskjálftum vegna hrinunnar sem hófst á Reykjanesskaga á laugardaginn. Frá miðnætti til klukkan sjö í morgun greindi Veðurstofan rúmlega sjö hundruð skjálfta.