Mynd dagsins: Ágúst Ólafur kominn með nýtt verkefni

Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, er á leið í doktorsnám í opinberri stjórnsýslu næsta haust.

Ágúst Ólafur sat á þingi árin 2003 til 2009 og aftur frá 2017 til 2021 en naut ekki stuðnings til áframhaldandi setu fyrir kosningarnar í fyrrahaust. Hann náði ekki einu af fimm efstu sætunum í skoðanakönnun sem haldin var innan flokksins í Reykjavík og ákvað í kjölfarið að taka ekki sæti á lista flokksins.

Ágúst Ólafur mun þó ekki sitja auðum höndum lengi því hann birti skemmtilega sjálfu af sér á Facebook í morgun og lét eftirfarandi texta fylgja með:

„Nú hefst nýr kafli. Doktorsumsókn mín í opinberri stjórnsýslu hefur verið samþykkt þannig að nú hefjast spennandi tímar við lestur, rannsóknir og skriftir.“

Ágúst Ólafur er lögfræðingur að mennt og auk þess með BA-próf í hagfræði og MPA-gráðu frá New York University.