Mynd dagsins: „Af­hverju Sigurður? Af­hverju ertu að gera okkur þetta?“

Mynd dagsins að þessu sinni birtist fyrst á Twitter og sýnir veður­frétta­manninn góð­kunna, Sigurð Jóns­son, í veður­fréttum Sjón­varps í gær­kvöldi.

Twitter-notandinn Hrafn­kell Sigurðs­son veitti því at­hygli að Sigurður sýndi mynd af veðrinu eins og það er á Spáni um þessar mundir. Eðli málsins sam­kvæmt eru fáir Ís­lendingar á far­alds­fæti eða í ferða­hug­leiðingum þessa dagana, enda þriðja bylgja kórónu­veirunnar á fleygi­ferð hér á landi.

„Af­hverju Sigurður? Af­hverju ertu að gera okkur þetta? Það er enginn að fara til Spánar, við verðum öll hér norpandi fram á mitt næsta ár. Burt með þetta bara. Burt!“

Einar Örn Jóns­son, í­þrótta­frétta­maður og kollegi Sigurðar hjá RÚV, stakk upp á á­kveðinni ný­breytni í at­huga­semd við færslu Hrafn­kels.

„Nú vil ég frum­leika í veður­fréttir, fyrst við erum föst hér. Veðrið á Suður­skauts­landinu, Kuala Lumpur, Murmansk og Mon­tevi­deo. Stöðum sem fáir fara á héðan hvort eð er.“