Mynd dagsins: „Af hverju er haka­kross á lóðinni fyrir utan Kefla­víkur­götu 2?“

Skemmti­legi Twitter að­gangurinn Blokkir eru bestar sem birtir myndir af öllum helstum blokkum á Ís­landi reglu­lega birti heldur betur á­huga­verða mynd af Kefla­víkur­götu 2 á Hellis­sandi í dag.

Reikningurinn er með yfir 1000 fylgj­endur og hafa margir gaman að því að sjá skemmti­legar ís­lenskar byggingar.

„Af­hverju er haka­kross á lóðinni fyrir utan Kefla­víkur­götu 2 á Hellis­sandi?!?!“ fylgir færslunni á Twitter.

Sigur­steinn Sigurðs­son segir síðan að þetta sé ekki haka­kross segir að ekki sé um haka­krossa að ræða.

Heimir Berg tekur undir og segir að „Þetta lítur lygi­lega illa út á sumum loft­myndum, en er í raun sak­laust úti lúdó fyrir yngsta stigið á grunn­skóla­lóðinni.“

Þá segir Hlynur Torfa­son í góðu gríni að „Við skulum vona að Rússar sjái þetta ekki gætu komið hingað til að frelsa okkur.“ Neðst má sjá nærmynd af lúdó spilinu.