Mynd dagsins: Æðis­leg mynd af Ís­landi úr geimnum

Mynd dagsins að þessu sinni er af Ís­landi og er myndin tekin úr Sentinel-3, gervi­tungli ESA, Evrópsku geim­vísinda­stofnunarinnar, föstudaginn 14. ágúst síðast­liðinn.

Það er ekki á hverjum degi að nánast ekkert ský sé á himni yfir Ís­landi en það gerðist þó um­ræddan dag. Myndin birtist á vef ESA í morgun á­samt nokkrum fróð­leiks­molum um landið. Bent er á að efst á myndinni vinstra megin megi sjá haf­ís við strendur Græn­lands.