Mynd dagsins: Adolf Ingi hrekkti Valtý Björn og birti gamla mynd

Adolf Ingi Er­lings­son, í­þrótta­frétta­maður til fjöl­margra ára, birti ansi hreint skemmti­lega mynd af kollega sínum Valtý Birni Valtýs­syni á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi.

Á myndinni má sjá góðan hóp ís­lenskra í­þrótta­frétta­manna í Vis­by í Sví­þjóð fyrir margt löngu.

Segja má að Valtýr Björn skeri sig nokkuð úr og þá einna helst stór­glæsi­legur frakki sem Valtýr klæðist á myndinni. Í færslu sinni spyr Adolf Ingi: „Ætli Valtýr Björn eigi þennan frakka enn­þá?“

Segja má að myndin hafi kætt marga og er Valtýr Björn í þeim hópi. Einn spyr hvort um sé að ræða tjaldið hans Valtýs. Þor­valdur Makan, fyrr­verandi knatt­spyrnu­maður, spyr hvort sér póst­númer hafi fylgt með frakkanum. Því svarar Valtýr Björn með nokkrum bros­körlum: „Eigin­lega landið og miðin.“