Veturinn hefur verið býsna snjóþungur á höfuðborgarsvæðinu eftir áramót og það getur gert vallarstarfsmönnum erfitt fyrir nú þegar stutt er að Íslandsmótið í fótbolta byrjar.
Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson birti mynd af Kaplakrikavelli á Twitter-síðu sinni. Óhætt er að segja að staðan hafi verið betri enda völlurinn snævi þakinn, rétt eins og aðrir óupphitaðir grasvellir á höfuðborgarsvæðinu.
Mikið hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu í febrúarmánuði og liggur þykkt lag af snjó yfir borginni. Spáð er hlýindum og vætu í vikunni en óvíst er hvort það dugi til að bræða snjóinn.
Fyrsta umferð Bestu deildarinnar hefst þann 18. apríl næstkomandi með leik Íslandsmeistara Víkings og FH á Víkingsvelli.
48 dagar í #Bestadeildin pic.twitter.com/uZFbGmh3f1
— Gummi Ben (@GummiBen) March 1, 2022