Tónleikahald fer nú að taka á sig eðlilega mynd aftur eftir kórónuveirufaraldurinn og virðist tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens tilbúinn í átökin.
„Að syngja og spila á gítar er vörn mín gagnvart ofbeldi æskunnar og dagsins í dag þú lagar ekkert með ofbeldi eða útilokun ofbeldi kallar alltaf á ofbeldi það eina sem virkar er samtal og sátt samkennd samúð og kærleikur,“ skrifar Bubbi og birtir af sér sjálfu með gítarinn og gítarnögl milli tannanna.
Að syngja og spila á gítar er vörn mín gagnvart ofbeldi æskunar og dagsins í dag þú lagar ekkert með ofbeldi eða útilokun ofbeldi kallar alltaf á ofbeldi það eina sem virkar er samtal og sátt samkend samúð og kærleikur pic.twitter.com/cxYn3t5yMU
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) March 3, 2022