Mynd dagsins: Að ferðast innan­húss öðlast nýja merkingu

Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu birti mynd dagsins að þessu sinni á Face­book-síðu sinni. Um páskana voru lands­menn hvattir til að ferðast innan­húss vegna CO­VID-19-far­aldursins og hlýddu margir þeim til­mælum.

Hug­takið að ferðast innan­húss öðlaðist þó nýja merkingu í hugum þeirra sem urðu vitni að því er hús var flutt í heilu lagi um götur borgarinnar á dögunum.

Verið var að flytja hús úr Mos­fells­bæ og í vestur­bæ Reykja­víkur en með­fylgjandi myndir voru teknar af starfs­manni Minja­stofnunar og þær birtar með góð­fús­legu leyfi hans.

„Mikið væri nú gaman ef allir gætu ferðast svona innan­húss! Nei, annars það myndi bara enda með stórum um­ferðar­hnút og á­standið yrði þá enn­þá verra en það sem við þekkjum úr bæði morgun- og síð­degis­um­ferðinni á höfuð­borgar­svæðinu alla virka daga,“ sagði lög­reglan í færslu sinni.

„Að öllu gamni slepptu þá sýna myndirnar eitt af mörgum og marg­vís­legum verk­efnum sem lög­reglan sinnir, en hér var verið að flytja hús úr Mos­fells­bæ og í vestur­bæ Reykja­víkur. Þótt svona flutningur fari fram utan háanna­tíma hefur hann á­hrif á um­ferðina engu að síður og það er að mörgu að hyggja enda má ekkert fara úr­skeiðis,“ sagði í skeyti lög­reglu.

Mikið væri nú gaman ef allir gætu ferðast svona innanhúss! Nei, annars það myndi bara enda með stórum umferðarhnút og...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Laugardagur, 18. apríl 2020