Mynd dagsins: „Á þessum degi 2004, eða fyrir 18 árum fékk ég ema­il frá mömmu heitinni“

Hand­bolta­stjarnan Logi Geirs­son deilur heldur fal­legri minningu um móðir sína í dag. Logi eins og margir vita var at­vinnu­maður í hand­bolta í mörg ár og bjó um tíma í Lem­go. Árið 2004 bað móðir hans hann um að kíkja í mið­bæinn svo hún gæti séð hann.

„Á þessum degi 2004 eða fyrir 18 árum fékk ég ema­il frá mömmu heitinni. „Sæll Logi minn, getur þú labbað niður í mið­bæ Lem­go og leyft mér að sjá þig í web­cam á torginu.” Sjálf­­sögðu gerði ég mér ferð og vinkaði, stilli­­mynd á mínútu fresti og stóð þar í korter ❤️ web­cam er þar enn,“ skrifar Logi og birtir mynd af mið­bænum.