Skiptingin úr plaströrum yfir í papparör er líklega eitt helsta deilumál ársins, að öllum stjórnmálum, brotamálum, dómsmálum og viðskiptum undanskyldum. Fór það svo langt að stjórnmálamenn reyndu að næla sér í atkvæði í kosningabaráttunni með því að lofa að losa þjóðina við papparörin úr kókómjólkinni.
Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður Stundarinnar, er nú staddur í Svíþjóð og birti mynd á Twitter af því hvernig Svíarnir losuðu sig við plaströrin án þess að skipta yfir í hin hötuðu papparör:
Á sænsku járnbrautunum er búið að leysa þetta með papparörin. Sleppa því bara. pic.twitter.com/QUwNAa0H3b
— Aðalsteinn (@adalsteinnk) November 22, 2021