Mynd dagsins: Á að taka prófið af öku­mönnum sem leggja svona?

Mynd dagsins að þessu sinni birtist fyrst inn á Face­book-síðu í­búa­hóps í Reykja­vík og sýnir bif­reið sem búið er að leggja í tvö stæði. Fjörugar um­ræður hafa farið fram í at­huga­semdum við myndina þar sem sumir eru þeirrar skoðunar að svipta þyrfti öku­menn öku­réttindum sem svona gera.

Ís­lendingar – og ef­laust fleiri – virðast hafa sér­stakt óþol fyrir þeim sem leggja öku­tækjum sínum í tvö stæði enda virðist oft lítill hugsana­gangur liggja að baki slíkri lagningu ef svo má segja.

Myndina má sjá hér neðst og hér að neðan eru svo nokkrar at­hyglis­verðar at­huga­semdir sem hafa verið settar við inn­leggið.

„Þessi virðist stað­ráðinn í að leggja akkúrat svona...“

„Það á að taka prófið af fólki sem kann ekki að leggja í stæði.“

„Mætti kannski sekta alla sem hafa dekkin á hvítri línu til að fólk leggi al­menni­lega.“

„Því miður eru stæði allt of þröng, menn verða oft fyrir tjóni þess vegna, menn mættu taka sér stæðin við IKEA og Costco til fyrir­myndar, en svona leggja menn ekki í stæði.“