Mynd dagins: „Mouse­keeping á Foss­hótel“

Kötturinn Pál er í fullu starfi sem músa­vörður á Foss­hóteli á Hellnum á Snæ­fells­nesi hefur verið að skemmta net­verjum í dag eftir að twitter-síða með hátt í 800 þúsund fylgj­endum birti mynd af starfs­mannas­kir­teininu sem hótelið lét gera fyrir kisu.

Hátt í þúsund manns hafa deilt færslunni og sett at­huga­semd við myndina en fjöl­margir segjist hafa hitt kisu er þeir gistu á Foss­hótel á Ís­landi.

„Ég hitti hana á Ís­landi og gaf henni þurrkaðan fisk. Hún var æðis­leg,“ skrifar Emily frá Hou­ston Texas.

Mun þetta ekki vera í fyrsta skipti sem læðan öðlast heims­frægð en hún var stjarnaá sam­fé­lags­miðlum árið 2018.

Í nokkrum færslum kemur fram að læðan Pál lést fyrir tveimur árum og er um gamla mynd að ræða en Hring­braut hefur ekki getað stað­fest það eins og er.