Mynd af stærsta eig­anda lax­eldis á Ís­landi vekur at­hygli: „Af­­myndaður eins og eldis­­laxarnir hans“

Guð­mundur Jörunds­son, fata­hönnuður birtir afar á­huga­verð mynd af, lax­eldis­erf­ing­inn Gustav Magn­ar Witzøe, eig­andi Sal­m­ar Hann á rúm­­lega 380 millj­arða ís­­lenskra króna og er efst­ur á lista yf­ir skatt­­greið­end­ur í Nor­egi.

Sal­m­ar er stærsti hags­muna­að­il­inn í lax­eldi á Ís­landi sem stærsti eig­andi Arn­ar­­lax á Bíldu­­dal.

„Stærsti eig­andi lax­eldis Ís­landi og milljarða­­mæringur er þessi ungi erfingi sem nú er orðinn módel. Það er svo geggjað að hann sé að módela af­­myndaður á líkama og í and­liti og með net framan í sér. Alveg eins og allir eldis­­laxarnir hans,“ skrifar Guð­mundur og birtir mynd af Gustav.

Ríkis­endur­skoðun dróg ný­verið upp svarta mynd af sjó­kvía­eldi hér á landi. Stjórn­sýsla og eftir­lit með greininni eru sögð hafa reynst „veik­burða og brota­kennd og vart í stakk búin til að takast á við aukin um­svif greinarinnar á síðustu árum. Breytingum á lögum um fisk­eldi sem var ætlað að stuðla að vexti og við­gangi greinarinnar í sátt við bæði sam­fé­lag og um­hverfi var ekki fylgt eftir með því að styrkja stjórn­sýslu og eftir­lit þeirra stofnana sem mæðir mest á.“