Elon Musk eigandi Twitter og stofnandi Teslu og Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi Ueno og starfsmaður Twitter hafa tekist harkalega á síðustu daga fyrir opnum dyrum.
Haraldur ákvað að ávarpa Musk á Twitter eftir að hafa gengið erfiðlega að fá svör við spurningum sínum um uppsögn sína.
Sagði hann að fyrir níu dögum hefði vinnuaðgangi hans og um 200 annarra starfsmanna Twitter verið lokað. Starfsmannastjóri Twitter gæti ekki staðfest hvort Haraldur væri enn starfsmaður og þá hefði Musk sjálfur ekki svarað tölvupóstum. Með því að ávarpa hann á Twitter væru ef til vill líkur á að hann gæti fengið svör. Óhætt er að segja að Haraldur hafi náð athygli Musks.
Musk var heldur ljótur í máli við Harald og hefur samskipti þeirra verið í heimspressunni síðustu daga. Musk dró síðan orð sín til baka sem og uppsögn Haraldar og sagði hann enn starfa hjá miðlinum. Þá eyddi hann ljótu tísti um Harald.
James Clayton blaðamaður BBC náði hins vegar skjáskot af skilaboðunum áður en Musk eyddi þeim.
Clayton segist ekki þekkja Harald en er nokkuð viss um að ekki allir séu sammála Musk um að hann sé „sá versti.“
NEW: Elon Musk had deleted a tweet, calling a recently fired employee (who had muscular dystrophy) "The worst". It had already been viewed half a million times. Here's the screengrab: pic.twitter.com/92123j9xB3
— James Clayton (@JamesClayton5) March 7, 2023
I don't know Mr Thorleifsoon, however he won a person of the year award in Iceland a few months ago. Clearly not everyone shares Mr Musk's view https://t.co/TS08k1Crnt
— James Clayton (@JamesClayton5) March 7, 2023