Yfirvöld á Spáni útiloka ekki að landið verði opnað fyrir erlendum ferðamönnum strax í lok júní. COVID-19-faraldurinn hefur verið í rénun þar eins og víða annars staðar í Evrópu.
Þó er Spánn það Evrópuríki sem hefur farið hvað verst út úr faraldrinum. Staðfest smit þar eru rúmlega 230 þúsund og dauðsföll tæplega 28 þúsund. Á mánudag voru ný dauðsföll 59 sem er það minnsta síðan um miðjan marsmánuð.
Jose Luis Abalos, ráðherra ferðamála á Spáni, segir að markmiðið sé að opna landið fyrir ferðamönnum seinni hluta júnímánaðar. Að því er fram kemur á ferðavefnum Travel Mole tilkynntu stjórnvöld í síðustu viku að ferðamenn sem koma til landsins þurfi að fara í tveggja vikna sóttkví við komuna til landsins.
Abalos segir að með tíð og tíma verði dregið úr þessum ráðstöfunum og markmiðið sé að opna landið í lok júní. „Um leið og við Spánverjar getum ferðast óhindrað á milli héraða munu ferðamenn fá leyfi til að koma til landsins. Eðli málsins samkvæmt getum við ekki leyft ferðamönnum að ferðast óhindrað um landið meðan heimamenn mega það ekki,“ segir Abalos.
Spánverjar treysta mjög á ferðamenn og er Spánn sá áfangastaður sem hefur verið hvað vinsælastur hjá Íslendingum í gegnum árin. Miðað við þá staðreynd að Íslendingar geta gengist undir skimun við heimkomuna og sleppt því að fara í sóttkví eftir 15. júní gæti vel farið svo að Íslendingar hópist á strendur Spánar í sumar – gangi allt samkvæmt áætlun.