Icelandair er sagt íhuga að láta reyna á ákvæði um Flugfreyjufélag Íslands fyrir félagsdómi, en það gæti greitt fyrir ráðningu starfsfólks utan stéttarfélagsins. Fjallað er um þetta í Markaðnum í Fréttablaðinu í dag.
Icelandair Group og Flugfreyjufélag Íslands hafa staðið í kjaradeilu, en eins og flestum er kunnugt er staða Icelandair mjög þung um þessar mundir. Þarf félagið að lækka launakostnað verulega á næstu misserum.
Heimildir Markaðarins herma að þetta sé möguleiki sem stjórnendur Icelandair Group íhuga að grípa til. Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, segir við Markaðinn að þetta hljóti að vera einn af þeim valkostum sem Icelandair verður að skoða vegna erfiðrar stöðu sinnar.
„Opinn og frjáls vinnumarkaður þýðir í raun að það er mögulegt að leita starfsmanna utan ákveðinna stéttarfélaga og félagafrelsi tryggir að starfsfólk þarf ekki að vera í ákveðnu stéttarfélagi, ef það kýs svo. Að því leyti ætti þetta að vera raunhæfur möguleiki fyrir félagið að skoða,“ segir Jón Karl.
Frétt Markaðarins í heild sinni.