Mun Framsóknarflokkurinn sprengja ríkisstjórnina?

Titringur er innan ríkisstjórnarinnar vegna þess hvernig var staðið að útboðinu á hlut ríkisins í Íslandsbanka á dögunum.

Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, sagði í viðtali í Morgunblaðinu í morgun að hún væri ekki hlynnt þeirri ákvörðun að selja hlutinn til valins hóps fjárfesta.

„Miðað við að­stæður og um­ræðuna nú tel ég að hægja verði á einka­­væðing­unni. Í mín­um huga er líka al­veg ljóst að Lands­bank­inn skuli vera á­fram í eigu þjóðar­inn­ar. Sala á hon­um kem­ur ekki til greina,“ sagði hún.

Þá benti hún á að á­byrgðin hlyti að vera stjórn­mála­mannanna sem tóku á­kvörðun í málinu, en ekki að skella skuldinni al­farið á stjórn­endur Banka­sýslunnar.

Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, veltir því fyrir sér hvort ríkisstjórnin muni springa.

„Það skyldi þó aldrei vera að framsókn, sem hefur ekkert sagt alla vikuna um bankasöluna, sprengdi á endanum ríkisstjórnina. Það að viðskiptaráðherra skutli rotaranum með þessum hætti á fjármálaráðherra á sama tíma og þingmenn og ráðherrar Vg (og auðvitað Xd) eru upp að öxlum í flórnum í vörninni fyrir hann mun ekki beint vera til að bæta slæmt ástand í ríkisstjórninni.“