Magnús kveður Fót­bolta.net: Svona brást Mourin­ho við þegar Magnús vildi taka við hann við­tal

Magnús Már Einars­son til­kynnti í dag að hann er hættur sem rit­stjóri Fót­bolta.net eftir ní­tján ár í starfi. Hann deilir ansi skemmti­legri frá­sögn af því við til­efnið þegar hann nálgaðist stór­stirnið José Mourin­ho á Laugar­dals­velli árið 2004, þá 14 ára gamall.

Magnús hefur starfað á miðlinum frá árinu 2002, en þá var hann einungis 13 ára gamall. „Þrátt fyrir að vera 140 cm á hæð og skræk­róma á þessum tíma (og reyndar allt til 18 ára aldurs) var mér virki­lega vel tekið og fljót­lega var ég farinn að fjalla um leiki í öllum deildum og taka við­töl við ýmsar stjörnur í boltanum,“ skrifar Magnús í ein­lægri færslu sem hann birtir á Twitter.

„Jose Mourin­ho var reyndar ekki alveg að átta sig þegar ég bað hann um við­tal á Laugar­dals­velli árið 2004...hann hélt lík­lega að það væri falin mynda­vél í gangi,“ skrifar Magnús hnyttinn í færslunni.

Eftir hann standa 76.918 fréttir og því sannar­lega tíma­mót hjá Magnúsi. Í frétt á Fót­bolta.net kemur fram að hann ætli nú að draga sig í hlé frá fjöl­miðla­störfum og ein­beita sér að þjálfara­ferlinum og fjöl­skyldu. Elvar Geir Magnús­son, sem stýrt hefur miðlinum með Magnúsi, heldur á­fram í stóli rit­stjóra.

„Ég hef kynnst ó­trú­lega mikið af skemmti­legu og góðu fólki í gegnum starf mitt á .net í gegnum tíðina, farið í ó­gleyman­legar ferðir er­lendis að fylgja ís­lenska lands­liðinu (há­punktarnir EM og HM) og þessi vinna hefur verið gífur­lega gefandi og skemmti­leg. Fót­bolti.net er í frá­bærum höndum í dag og mun pott­þétt halda á­fram að vaxa og dafna með hverju árinu líkt og hingað til. Ég hætti mjög sáttur og breytist úr starfs­manni yfir í dyggan lesanda Fót­bolta.net. Takk kær­lega fyrir mig!“