Fjórar konur gengu út af jafnréttiþingi og virtust gefa Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, rauða spjaldið er hún hélt erindi sitt á ráðstefnunni í Hörpu í dag. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Í erindi sínu fjallað Sólveig Anna um efnahagslega kúgun verka- og láglaunakvenna á íslenskum vinnumarkaði og hvaða áhrif slík kúgun hefði.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins risu tvær konur úr sætum á meðan á erindinu stóð, lyftu upp rauðum borða með skriflegum skilaboðum, og þá héldu þær á sitthvoru rauða spjaldinu, sem virtist beint að Sólveigu. Í kjölfarið gengu þær út. Á borðanum stendur: Við erum að dæma þennan leik og þú færð rauða spjaldið.
Samkvæmt heimldum Stundarinnar voru það Phoenix Jessica Ramos, Agnieszka Sokolowska, Cristina Milcher og Wiktoria Joanna Ginter sem veifuðu rauðum spjöldum.
Mikil ólga hefur verið innan verkalýðshreyfingarinnar á undanförnum misserum. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, drógu framboð sín til baka, ásamt Sólveigu Önnu, í forystuslag ASÍ á dögunum. Þau sögðust gera það vegna þess að svo virtist sem lítill samstarfsvilji væri úr öðrum kimum hreyfingarinnar.
Í kjölfarið sagði Sólveig að sér væri orðið ljóst að vonin um umbætur á ASÍ væri úti. Þá sagðist hún ekki hafa neinn áhuga á að bjóða sig aftur fram til varaformanns samtakanna.
Þá vakti mikið umtal, fyrr á þessu ári, þegar öllu starfsfólki Eflingar var sagt upp. Það gerðist á fyrsta degi Sólveigar Önnu sem formanns, eftir að hún hafði verið kjörin í embættið í annað skipti. Hún sagði þær ekki vera hreinsanir á „óæskilegu fólki“ heldur skipulagsbreytingar sem byggðu á mikilli greiningarvinnu.
Stundinni barst í framhaldi yfirlýsing kvennana fjögurra:
„Við mótmælum Sólveigu Önnu sem ræðismanni á þessum viðburði varðandi réttindi kvenna á erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði.
Við mótmælum af eftirfarandi ástæðum:
Sólveig Anna var valin sem fulltrúi eflingar, hvers meðlimir af erlendum uppruna telja meirihluta félagsins.
Sólveig var valin til þess að ræða fyrir erlendra kvenna, þrátt fyrir að varaformaður eflingar sé erlendur kvenmaður.
Umræðuefni ræðu hennar er um láglaunafólk, en þau vandamál sem herja á erlendar konur eru margbreytileg og þarfnast sérstakrar athygli.
Sólveig er sjálf sek um að grafa undan þáttöku erlendra kvenna á vinnumarkaði, sem og þjónustu til þeirra sem allra réttindi sín til stéttarfélagsins. Eftir brottrekstur allmargra í apríl frá skrifstofum félagsins, lagði hun fram kröfu um íslensku kunnáttu meðal umsækjenda til vinnu, og þar með hindraði þáttöku innflytjenda sem unnu áður hjá Eflingu.
Sólveig hefur einnig hætt að framfylgja vinnueftirliti sem hlúðu að þeim viðkvæmustu hópum innflytjenda, sem tala hvorki ensku né íslensku.
Til viðbótar ákvað Sólveig að íslensku kennsla væri ekki í forgangi og þyrfti ekki á þá minnst í kjarasamningum. Þegar hún fékk gagnrýni vegna þess frá samtökum kvenna af erlendum uppruna, sýndi hún þeim athugasemdum engan áhuga.
Vegna þess fær Sólveig rautt spjald í þessum leik.
Að lokum mótmælum við að þetta "jafnréttisþing" fari fram einungis á íslensku, í miðri viku, sem hefur þau augljósu áhrif að skera á þáttöku erlendra kvenna.
Enn er talað um okkur, frekar en að okkur sé boðið inn í samræðuna, og virðist sem þessi ráðstefna sé gervi viðburður fyrir Íslendinga sem mun ekki hafa nein jákvæð áhrif á stöðu erlendra kvenna.“