Mos­fellingar ó­sáttir eftir flug­elda­sýningu: „Besta flug­elda­sýning sem ég hef heyrt“

Í­búar í Mos­fells­bæ voru margir hverjir ó­sáttir með hvernig flug­elda­sýningunni á bæjar­há­tíðinni „Í túninu heima“ var háttað.

Fjöldi fólks stóð á torginu í Mos­fells­bæ þar sem helstu skemmtana­höld há­tíðarinnar fóru fram rétt áður en flug­elda­sýningin hófst. Eftir að hún hófst tók fólk til að baula vegna þess að fólk sem stóð á torginu sá enga flug­elda­sýningu vegna ný­bygginga sem reistar hafa verið upp frá því að há­tíðin var síðast haldin.

„Hefði mátt hafa hana ör­lítið lengra í burtu frá torginu þar sem ALLT VAR, kannski nær Reykja­vík svo þetta sæist enn þá minna,“ segir einn í at­huga­semd í hverfis­hóp á Face­book.

Flug­eldum var ekki skotið upp á sama stað og hefð er fyrir, heldur var skotið upp við veginn sem liggur upp að Lága­fells­kirkju, en skipu­leggj­endur tóku ekki inn í jöfnuna ný­byggingar sem stóðu fyrir há­tíðar­gestum.

„Þetta er besta flug­elda­sýning sem ég hef heyrt,“ segir einn íbúi Mos­fells­bæjar í bæjar­hópnum á Face­book, Mosó – bærinn okkar.

„Vá hvað flug­elda­sýningin var á glötuðum stað. Enginn á torginu sá hana, sorg­legt,“ skrifar annar.

Einn íbúi kemur þessu til varnar og segir: „Eðli­lega ekki hægt að sprengja nær torginu þar sem það er búið að troða 50 blokkum í mið­bæinn síðan síðast sem myndi stafa eld­hætta af.“