Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fékk nálgunarbann gegn manni sem áreitt hefur hana um langa hríð. Nálgunarbannið fékk hún fyrst í fyrrasumar en það var svo framlengt um eitt ár núna í janúar síðastliðnum eftir að maðurinn setti sig í samband við hana aftur.
Marta sagði frá þessu á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi og ræddi við fréttavef DV í kjölfarið.
„Ég fékk nálgunarbann í sumar á mann sem hafði áreitt mig. Áreitið var orðið yfirgengilegt og hótanir í kjölfarið, sem urðu til þess að ég neyddist til að leita til lögreglu. Það leiddi til nálgunarbanns í hálft ár. Fyrir örfáum dögum fékk ég síðan þetta nálgunarbann endurnýjað þar sem viðkomandi var farinn að setja sig í samband við mig aftur. Það nálgunarbann mun vara í heilt ár,“ sagði Marta við DV.
Hún segir að maðurinn hafi upphaflega sett sig í samband við hana vegna hennar starfa, en Marta vill ekki fara nánar út í efnisatriði málsins. Samskiptin fóru í kjölfarið að þróast út í áreiti og loks hótanir, meðal annars um líkamsmeiðingar.
Umræða um hótanir og áreiti sem stjórnmálamenn hér á landi verða fyrir hefur verið fyrirferðamikil eftir að skotið var á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og á húsnæði stjórnmálaflokka hér á landi. Sjálf segir Marta að hótanir þurfi að taka alvarlega og þær ekki að líðast.
„Ég ákvað að segja frá þessu í kvöld vegna þess að ég taldi að það að deila þessari reynslu minni gæti orðið liður í að varpa ljósi á umfang þeirra mála sem hafa komið upp hjá kjörnum fulltrúum, og það gæti orðið liður í því að vinna gegn ofbeldi og áreitni,“ sagði Marta við DV.