Síðasti þáttur Morgunkaffisins á Rás 2 var fluttur í morgun. Það kynntu þau Björg Magnúsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson í þættinum sjálfum.
Þátturinn hefur verið hluti af reglubundinni dagskrá Rásar 2 undanfarin ár en varð að hætta vegna sparnaðaraðgerða RÚV.
Björg sagði í samtali við Fréttablaðið í dag að þau séu leið yfir þessum málalokum en að þau kveðju þáttinn með góðar minningar í farteskinu. Þau hafi elskað að mæta í vinnuna og hlakkað til hvers laugardagsmorguns.
„Við vonum að það hafi komið í gegn,“ segir Björg.
Óljóst er hvað tekur við á dagskrá Rásar 2 á laugardagsmorgnum.