Tuttugu og tvö kórónuveitusmit greindust hér á landi í gær, tíu á landamærunum en tólf innanlands. Þetta segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttavef Morgunblaðsins.
Í gærkvöldi var greint frá því að klasasmit hefði komið upp á höfuðborgarsvæðinu og minnst átta einstaklingar verið fluttir í farsóttarhúsið við Rauðarárstíg.
Í fréttinni kemur fram að fimm hælisleitendur, sem búa þröngt, hafi greinst smitaðir og ekki sé útilokað að fleiri smit muni koma upp í tengslum við þá sýkingu í kjölfarið.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu, sem annast sjúkraflutninga, hefur haft í nægu að snúast að undanförnu en í gær voru farnir 113 sjúkraflutningar, þar af 17 vegna COVID-19.