„Fólk sem flytur til Norðurlandanna verður gáttað á hvað lífið er þar léttara, hvað samfélögin eru miklu fremur aðlöguð að þörfum venjulegs fólks. Þegar það horfir aftur og upp til Íslands undrar það sig á hvurslags þrælakista þetta land er, að öll grunnkerfi samfélagsins séu hönnuð til að ná sem mestu af fólki.“
Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, um athyglisvert viðtal við íslensku konu, Mollý Jökulsdóttur, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Mollý býr í Silkeborg ásamt unnusta sínum og barni en í viðtalinu lýsti hún því hvernig allt væri auðveldara í Danmörku en á Íslandi. Lánin væru til dæmis hagstæðari og maturinn ódýrari.
Gunnar Smári telur að ástæðuna fyrir þessum mun á milli Íslands og annarra Norðurlandanna sé sá að sósíalisminn hafi mikil áhrif á Norðurlöndunum á síðustu öld en of lítil hér heima heima.
„Þetta er sorgleg staðreynd. Fasískt erindi Sjálfstæðisflokksins um þjóðernisrembing og höfnun stéttamunar hafði mikil skaðleg áhrif á þróun íslensks samfélags. En skaðinn er ekki varanlegur. Við getum snúið við og ákveðið að byggja upp samfélag út frá þörfum og væntingum almennings. Munurinn á þessum samfélög er ekki vegna þess að Íslendingar séu verra fólk, þeir tóku bara verri pólitískar ákvarðanir. Það má laga 25. september 2021,“ segir Gunnar Smári sem hvetur fólk til að kjósa sósíalismann í næstu kosningum.